Úrslit af alþjóðlegri sýningu HRFÍ sem var þann 5. mars eru komin inn á síðuna. Úrslit af hvolpasýningu sem var 3. mars eru líka komin inn, besti hvolpur tegundar 3-6 mánaða var Multi Star’s Mind Is The Magic “Magic”. Besti hvolpur tegundar 6-9 mánaða var Hálsakots You Are A Lucky Guy “Rómeó”.
Besti hundur tegundar og besti öldungur var ISCh Hálsakots Dream A Little Dream “Netta”, 3. sæti í úrslitum um besta öldung. Besti rakki tegundar var ISCh Multi Star’s Arjen Robben “Mosi”. Besti ræktunarhópur var frá Hálsakots ræktun.
Til hamingju með árangurinn! Myndir frá sýningunni eru komnar inn á fésbókina.